Jæja.. ég sem ættlaði að vera duglegur að blogga.. það gengur svona fínt :p
Fór til húsavíkur um dagin með Valda og Guddu á mærudagana.. var mjööög gaman :) fer örugglega bara aftur á næsta ári :p
þar var bara spókað sig í sólinni á daginn og djammað á kvöldin... voða fínt :p
Svo kom versló, sem byrjaði á því að við steggjuðum hann pésa... :D settum hann í voðalega fínan Batmanbúning og fórum í paintball og fleira, smá hring í miðbæinn, keilu og svona... Setti inn nokkrar myndir af honum í albúm sem heitir Batman steggjaður. :) er svona að spá í hvort að ég eigi að setja eithvað inn af öllum hinum myndunum þar sem menn eru misskrautlegir ;)
Svo á laugardeginum var bara farið á sálarball í sjallanum, sem var mjööög gaman :) hitti fullt af fallegu fólki og bara mega stuð :) sérstaklega seinni partinn :)
Það var nú eithvað rólegra yfir manni á sunnudagsvköldið, fór á akureyrarvöllinn þar sem allt fólkið í heiminum var samankomið :) hefði kannski verið hægt að setja þetta betur upp svo það væri ekki svona þröngt.. :p
en annars þá fannst mér þessi helgi bara koma mjög vel út fyrir bæinn...
maður er nátturulega orðinn svo gamall.. .:p
Svo er bara næsta mál á dagskrá að fara í brúðkaupið hjá pésa og siggu á morgun :) það verður stuð :) klárlega.. einn smá galli.. ég lofaði víst að taka einn þátt í útvarpinu kl eitt á laugardaginn.. þannig að ég þarf að vera pínu hress :p ekki búin að seigja orð í útvarpinu síðan í vor :s úbbasí....
Og já.. eitt enn... fór í ræktina áðan.. og fór á vigtina "mína" sem ég miða semsagt við... og miðað við hana... þá er ég búin að missa 10 kíló síðan í maí!!!! :D
jæja... ég nenni aldrei að skrifa meira í einu.. svo að... bæ..
ps. gaman að sjá að það eru einhverjir sem lesa þetta.. og takk fyrir þið örfáu sem kommentið ;)
