Jón Hilmar Gústafsson

http://www.einhver.net/

Illa uppfærð síða með stuttum bloggum og fáum myndum

Efni

Sumarfrí?

07.08.2008 17:03 - 1939 lestrar - comment (7)

Jæja.. ég sem ættlaði að vera duglegur að blogga.. það gengur svona fínt :p

 

Fór til húsavíkur um dagin með Valda og Guddu á mærudagana.. var mjööög gaman :) fer örugglega bara aftur á næsta ári :p

 

þar var bara spókað sig í sólinni á daginn og djammað á kvöldin... voða fínt :p

 

Svo kom versló, sem byrjaði á því að við steggjuðum hann pésa... :D settum hann í voðalega fínan Batmanbúning og fórum í paintball og fleira, smá hring í miðbæinn, keilu og svona... Setti inn nokkrar myndir af honum í albúm sem heitir Batman steggjaður. :) er svona að spá í hvort að ég eigi að setja eithvað inn af öllum hinum myndunum þar sem menn eru misskrautlegir ;)

 

Svo á laugardeginum var bara farið á sálarball í sjallanum, sem var mjööög gaman :) hitti fullt af fallegu fólki og bara mega stuð :) sérstaklega seinni partinn :)

 Það var nú eithvað rólegra yfir manni á sunnudagsvköldið, fór á akureyrarvöllinn þar sem allt fólkið í heiminum var samankomið :) hefði kannski verið hægt að setja þetta betur upp svo það væri ekki svona þröngt.. :p

 

en annars þá fannst mér þessi helgi bara koma mjög vel út fyrir bæinn... 

maður er nátturulega orðinn svo gamall.. .:p

 

Svo er bara næsta mál á dagskrá að fara í brúðkaupið hjá pésa og siggu á morgun :) það verður stuð :) klárlega.. einn smá galli.. ég lofaði víst að taka einn þátt í útvarpinu kl eitt á laugardaginn.. þannig að ég þarf að vera pínu hress :p ekki búin að seigja orð í útvarpinu síðan í vor :s úbbasí....

 

Og já.. eitt enn... fór í ræktina áðan.. og fór á vigtina "mína" sem ég miða semsagt við... og miðað við hana... þá er ég búin að missa 10 kíló síðan í maí!!!! :D

jæja... ég nenni aldrei að skrifa meira í einu.. svo að... bæ..

 

ps. gaman að sjá að það eru einhverjir sem lesa þetta.. og takk fyrir þið örfáu sem kommentið ;)

 

 


Annað blogg á tveim dögum?? hvað er í gangi?

22.07.2008 20:12 - 1807 lestrar - comment (3)

Jæja.. ég bara varð að koma með þetta... það er búið að vera svo gaman síðan ég bloggaði í gær... :p

 

Í dag þurftum við félagarnir í vinnunni að skipta um eina myndavél, sem var fyrir ofan dýpið í Glerárlaug. og til þess, þurftum við að fara með þriggja hæða stillans... útí laugina :D og ég tók nokkrar myndir :p

 Þarna er verið að klára að setja stillansinn saman :p

 IMG_6925minnkud.

Svo þurfti að koma honum á sinn stað...

IMG_6927minnkud. 

 Og svo var bara að drífa sig upp og skipta um vélina :p

IMG_6929minnkud.

Pínu hátt... og hallaði aaaaðeins... :)

IMG_6931minnkud.

 

 

Og já.. eitt enn... svo var ég að tannbursta mig í gær... og tókst að skalla baðinnréttinguna svona vel að ég er með þennann fína skurð á enninu í þokkabót :S eða reyndar plástur núna......

photo_3_400 

 

 En já.. nóg um mig... hvað seigið þið??

 


Hvað getur maður sagt?

21.07.2008 22:10 - 1765 lestrar - comment (0)

Jahá... ég veit ekki alveg hvað ég á að seigja hérna.. það er alltaf verið að ýta á mann að blogga.. en um hvað? ég veit það ekki... :p

 

Ég gæti svosem byrjað á því að seigja að þetta er loksins skrifað á nýju tölvuna mína :D eitt stykki 24" iMac, með 3,06GHz örgjörva, 1Terabyte hörðum disk og 4GB í minni... Og fyrir þá sem skilja ekki svona... þá er þetta mjöööög fínt :D

Þannig að ég er voðalega glaður með það..

 

Svo kom Hulda systir norður í maí, og er búin að vera hérna með annan fótinn, af því hún er að vinna í mývatnssveit aðrahverja viku. Og þegar hún kom norður, fórum við að drífa okkur í ræktina, og ég er búin að vera voðalega duglegur þar. Nánar tiltekið er ég búin að missa rúm 8 kíló síðan í maí :) og er bara voðalega ánægður með það...

 

uuu.. næsta mál.. Versló.. mig langar til eyja... en það verður bara að bíða... ég ættla að fara á næsta ári... það er bara ákveðið :)

Annars verður fullt að gerast hér, þannig að það verður eflaust fullt af fólki hérna.. Ný Dönsk, Sálin, Eurobandið, Klúbbakvöld með Flex, Páll Óskar, og fullt af fínum DJ um á Kaffi Ak og sona... og ef það er eithvað að marka eithvað sem ég las á netinu í gær... þá verður unglingatjaldstæðið í garðinum hjá mér... :s

 

Annars var komin upp hugmynd hjá okkur Einari LOGA að renna á siglufjörð á laugardeginum og kíkja á ball með Bermúda, og ég held að það sé sko ekkert verra en að fara á sálina í sjallanum... aftur... ;)

 

eeen já.. fínt.. :p

 

Svo er það bara næsta helgi... Mærudagar á húsavík :p Valdi og Gudda ákváðu strax í fyrra að ég kæmi með aftur í ár, og why not maður! ekkert að því að eyða einni helgi á húsavík :p

 

Kannski ef ég verð geeeeðveikt duglegur... þá kem ég með myndir og blogg um það eftir helgina... þeas. ef ég gleymi ekki myndavélinni heima!.... 

 

Já... uuuu einhverjar spurningar??? 

 

Kv. Jóni....

 

 


Það styttist ennþá í blogg :p

28.04.2008 00:09 - 1289 lestrar - comment (1)


Gargandi snilld

13.04.2008 20:13 - 1261 lestrar - comment (2)

Ég lofa að fara blogga bráðum.. og ég lofa að fara tæma myndavélina af myndum síðustu 3 mánaða bráðum! :p

En þangað til... Ný Dönsk í Sjallanum í gær! SNILLD!

Og... HORFIÐ Á ÞETTA!


« fyrri síða | næsta síða »

Upp aftur