Jahá... ég veit ekki alveg hvað ég á að seigja hérna.. það er alltaf verið að ýta á mann að blogga.. en um hvað? ég veit það ekki... :p
Ég gæti svosem byrjað á því að seigja að þetta er loksins skrifað á nýju tölvuna mína :D eitt stykki 24" iMac, með 3,06GHz örgjörva, 1Terabyte hörðum disk og 4GB í minni... Og fyrir þá sem skilja ekki svona... þá er þetta mjöööög fínt :D
Þannig að ég er voðalega glaður með það..
Svo kom Hulda systir norður í maí, og er búin að vera hérna með annan fótinn, af því hún er að vinna í mývatnssveit aðrahverja viku. Og þegar hún kom norður, fórum við að drífa okkur í ræktina, og ég er búin að vera voðalega duglegur þar. Nánar tiltekið er ég búin að missa rúm 8 kíló síðan í maí :) og er bara voðalega ánægður með það...
uuu.. næsta mál.. Versló.. mig langar til eyja... en það verður bara að bíða... ég ættla að fara á næsta ári... það er bara ákveðið :)
Annars verður fullt að gerast hér, þannig að það verður eflaust fullt af fólki hérna.. Ný Dönsk, Sálin, Eurobandið, Klúbbakvöld með Flex, Páll Óskar, og fullt af fínum DJ um á Kaffi Ak og sona... og ef það er eithvað að marka eithvað sem ég las á netinu í gær... þá verður unglingatjaldstæðið í garðinum hjá mér... :s
Annars var komin upp hugmynd hjá okkur Einari LOGA að renna á siglufjörð á laugardeginum og kíkja á ball með Bermúda, og ég held að það sé sko ekkert verra en að fara á sálina í sjallanum... aftur... ;)
eeen já.. fínt.. :p
Svo er það bara næsta helgi... Mærudagar á húsavík :p Valdi og Gudda ákváðu strax í fyrra að ég kæmi með aftur í ár, og why not maður! ekkert að því að eyða einni helgi á húsavík :p
Kannski ef ég verð geeeeðveikt duglegur... þá kem ég með myndir og blogg um það eftir helgina... þeas. ef ég gleymi ekki myndavélinni heima!....
Já... uuuu einhverjar spurningar???
Kv. Jóni....
