Jón Hilmar Gústafsson

http://www.einhver.net/

Illa uppfærð síða með stuttum bloggum og fáum myndum

Efni

Af hverju Einhver?

Jahá... Hvað ættli ég hafi oft verið spurður að þessu???

 

Oft........ :)

 

Allavega...

Þá byrjaði þetta vorið 2003 held ég alveg örugglega, þegar ég fór mína fyrstu ferð sem rótari hjá svörtum fötum, og af því ég var að taka við af Bjarka bróðir þá vorum við saman nokkrar helgar á meðan hann var að "kenna" mér á þetta ;)

Semsagt þessa helgi erum við að fara á Humarhátið á Höfn í Hornafirði, og erum rétt lenntir á flugvellinum og Bjarki byrjaður að raða dótinu í einhvern risa björgunarsveitarbíl sem átti að keyra okkur í bæin. Þá spyr Áki bassaleikari svona yfir hópinn, "Þarf ekki einhver að hjápa honum?" og að sjálfsögðu horfðu ALLIR á mig. Svo þegar við erum komnir á gistiheimilið sem við gistum á, uppgvötast það að það er einu rúmi of lítið, og þá segir Áki, "það verður einhver að sofa á dýnunni á stofugólfinu." Og hvert horfa allir? á mig Auðvitað! Þannig líða svo næstu dagar, "þarf ekki einhver að fara á barinn?", "Veit einhver um bassann minn?", "Veit einhver um símann, veskið, sólgleraugun og húslykklana mín!?"

Og eftir það var frekar mikið um það að "einhver" þurfti að redda hinu og þessu, reyndar laaangsamlega oftast var að "þarf ekki einhver að fara á barinn?" og þeir sem þekkja mig vita að það þarf ekki að spyrja mig tvisvar um ferð á barinn ;)

Og síðan þá hef ég alltaf heitið Einhver á msn og átt þónokkrar bloggsíður undir því nafni... sem hafa allar dáið... svo njótið þessar á meðan þið getið!!!

 

Bkv.

Einhver

 

Upp aftur